Jólatrjáasöfnun Fálka

Fálkar í samstarfi við yngri flokka Vals sækja jólatré til förgunar gegn greiðslu laugardaginn 11. janúar. Hægt er að panta þessa þjónustu gegn 4.000 króna gjaldi með því að greiða á eftirfarandi greiðsluhlekk. Þessi þjónusta er í boði fyrir alla þá sem búa í Miðbæ, Holtum eða Hlíðum.

Öll innkoma rennur óskipt til barna og unglingastarfs í Val. Það eru börn, unglingar og sjálfboðaliðar úr Fálkunum sem safna trjánum.

Við óskum eftir að allir sem nýta sér þessa þjónustu setji tré fyrir framan hús, út við götu, í síðasta lagi kl 12. Þetta einfaldar söfnun til muna og þá eru engir ókunnugir einstaklingar á ferli um garðana þennan dag. Einnig er gott að setja upplýsingar í athugasemd ef þörf er á nánari upplýsingum um staðsetningu á jólatré, t.d. ef þau eru fleiri en eitt og á öðrum stað en skráð heimilisfang greiðanda.

Verð 4.000 kr

Laugardagur 11. janúar